Hið Íslenska Tröllavinafélag

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Saturday, March 01, 2008
Af Hinu íslenska tröllavinafélagi

Síðan síðasta færsla var skrifðu hefur ýmislegt gerst hjá hinu íslenska tröllavinafélagi.

Í fyrsta lagi fóru Tröllavinir að venju á Wacken Open Air árið 2007.

Í öðru lagi átti Tröllavinafélagið aðild að því að finnska þungarokkshljómsveitin Finntroll kom til landsins á haustdögum.

Í þriðja lagi fóru Tröllavinir í Hítardal í haust.

Í fjórða lagi hafa aðalfundur og þorrablót verið haldin. Það var á bóndadag er leið, á félagsheimilinu Celtic Cross, og voru eftirfarandi kjörnir í stjórn:

Vésteinn Valgarðsson formaður
Davíð Arnar Runólfsson varaformaður
Pétur Jóhannes Óskarsson gjaldkeri og ritari
Ari Eydal Egilsson meðstjórnandi
Ólafur Gunnar Sævarsson meðstjórnandi
Bessi Eydal Egilsson varamaður í stjórn
Einar Steinn Valgarðsson varamaður í stjórn
Haukur Hilmarsson varamaður í stjórn


Posted at 05:00 am by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Friday, April 06, 2007
Viðtal

Rétt er að vía á viðtal sem Ragnar Ólafsson tók við þáverandi varaformann, núverandi formann HÍT, Véstein Valgarðsson, og birtist á liðnu hausti. Það er á AlltAnnað.is

Posted at 04:28 pm by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Tuesday, March 06, 2007
Félagsgjald

Félagsgjald fyrir árið 2007 ákvað aðalfundur að skyldi vera 500 krónur.

Gjafverið fyrir aðgang að súper félagi!

Posted at 02:26 am by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Af aðalfundi

Aðalfundur Hins íslenska tröllavinafélags þann 11. febrúar 2007 kaus nýja stjórn og er hún skipuð sem hér segir:

 

Vésteinn Valgarðsson, formaður

Davíð Arnar Runólfsson, varaformaður

Pétur Jóhann Óskarsson, ritari og gjaldkeri

Ólafur Gunnar Sævarsson, meðstjórnandi

Ari Eydal Egilsson, meðstjórnandi

 

Lagabreytingar voru jafnframt samþykktar. Hér að neðan getur að líta núgildandi lög:


Lög Hins íslenska tröllavinafélags

 

1. gr.

Félagið heitir Hið íslenska tröllavinafélag.   Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.

 

2. gr.

Tilgangur félagsins er að vinna að málefnum íslenskra trölla og samskiptum þeirra við aðra Íslendinga.

 

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná meðal annars með því að efla rannsóknir á íslenskum tröllum og lifnaðarháttum þeirra, vinna að því að tröllum sé tryggt öryggi, athvarf og afkoma, vernda vistkerfi sem tröll hafast við í og stuðla að stofnun þjóðgarða í þeim tilgangi.   Félagið hyggst standa fyrir vettvangsferðum á slóðir trölla, útgáfu á efni tengdu tröllum, jörvagleði og annarri menningarstarfsemi sem er í samræmi við tilganginn.

 

4. gr.

Félagsaðild

Félagið er opið öllum sem samþykkja lög þess og stefnuskrá og standa í skilum með félagsgjöld.   Stjórn getur rekið menn úr félaginu ef þeir gerast sekir um svik við málstað þess eða rægja það opinberlega.  Félagið heldur til haga póstlista áhugasamra tröllavina sem ekki eru gildir meðlimir í félaginu (hér eftir nefndir „félagar").   Tröllavinur telst gildur félagi í eitt ár frá þeim degi sem hann greiðir árgjald.  Gildir félagar hafa einir atkvæðisrétt á fundum félagsins og kosningarétt og kjörgengi í stjórnarkjöri.

 

5. gr.

Stjórn

Stjórn félagsins skal skipuð 5-9 félagsmönnum, kosnum á aðalfundi. Formaður er kosinn sérstaklega en hinir skipta með sér verkum sem hér segir: Varaformaður, ritari, gjaldkeri og tveir til sex meðstjórnendur. Formaður og stjórnarmenn eru kosnir til árs í senn. Daglega umsjón og starfsemi annast stjórnin og hún úthlutar fjárveitingum til nefnda. Formaður boðar stjórnarfundi og félagsfundi.   Ritari ritar fundargerðir, heldur utan um félagaskrá og heldur skjölum félagsins til haga.  Gjaldkeri annast innheimtu á félagsgjöldum og heldur utan um bókhald félagsins.   Stjórn félagsins hefur leyfi til að skipa í lausar stöður, enda skal hún auglýsa stöðuna á vefsíðu félagsins og tölvupósti. Ef engar athugasemdir berast innan viku telst hún fyllt.   Firmaritun félagsins er í höndum stjórnar.  Meirihluti stjórnar getur tekið ákvarðanir fyrir hönd félagsins til bráðabirgða.   Þær skulu bornar undir næsta félagsfund til samþykktar eða synjunar.

 

6. gr.

Vantraust

Vantrauststillaga á stjórnina skal borin fram skriflega og skal minnst fjórðungur félaga undirrita hana. Stjórninni er skylt að halda félagsfund um vantraust innan tveggja vikna og skal boða hann á sama hátt og segir til um aðalfund. Til þess að samþykkja vantrauststillögu þarf tvo þriðju greiddra atkvæða. Nái tillagan fram að ganga, skal ný stjórn kosin á sama hátt og á aðalfundi.

 

7. gr.

Aðalfundur

Starfstímabil og reikningsár félagsins er almanaksárið. Árlegan aðalfund skal halda í janúar og telst hann löglegur ef til hans er boðað með 5 virkra daga fyrirvara (að undanskildum fyrsta aðalfundi í janúar 2005). Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera grein fyrir liðnu starfsári og gefa upp endurskoðaða reikninga. Aðeins félagsmenn mega sitja aðalfund. Aukaaðalfund má boða ef sérstök ástæða þykir til og skal hann boðaður með sama hætti.

Dagskrá aðalfundar skal vera þessi:

  I.     Lesin skýrsla stjórnar.

  II.    Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til umræðu og bornir

        undir atkvæði.

  III. Lagabreytingar.

  IV. Kjörnir embættismenn félagsins:

        a. Formaður

        b. Aðrir stjórnarmenn

        c. Ritstjóri fréttabréfs   sem sent skal félögum eigi sjaldnar en ársþriðjungslega.

  V.   Árgjald komandi starfsárs ákveðið.

  VI. Önnur mál

 

8. gr.

Heiðursfélagi

Aðalfundur getur árlega gert einn mann, konu eða tröll að heiðursfélaga ef sérstök ástæða þykir til.   Heiðursfélagi heldur nafnbót sinni til æviloka ef hann gerist ekki sekur um svik við félagið, og er undanþeginn félagsgjöldum.

 

9. gr.

Vettvangsferðir og aðrar uppákomur

Vettvangsferðir, árshátíðir (á þorra eftir aðalfund) og aðrar uppákomur skulu ákveðnar af félagsfundi.   Félagsfundur getur falið sjálfboðaliðum að halda utan um skipulag og framkvæmdir þar að lútandi eftir því sem ástæða þykir til.  Vettvangsferðir skulu farnar á tröllaslóðir, fyrir félagsmenn og aðra áhugasama.   Skal þátttökugjaldi stillt í hóf, og gildir félagar fá nokkurn afslátt.

 

10. gr.

Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins ráðstafar stjórn þess með tilliti til ofangreindra markmiða og laga.

 

11. gr.

Breytingar á lögum þessum verða aðeins gerðar á löglegum aðalfundi með ¾ greiddra atkvæða ef ekki næst einróma samþykki. Breytingartillögur skulu bornar upp á aðalfundi.

 

12. gr.

Tillögu um að slíta félaginu má einungis afgreiða á aðalfundi. Skal það tilkynnt sérstaklega í fundarboði og hlýtur því aðeins samþykkt að ¾ atkvæðisbærra fundarmanna greiði tillögunni atkvæði. Sami fundur ráðstafar eignum félagsins í samræmi við markmið þess.

 

13. gr.

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins 20. janúar 2005 og öðlast gildi frá og með þeim degi.

Breytingar voru samþykktar á aðalfundi félagsins 20. janúar 2006 og öðlast þegar gildi.   Frekari breytingar voru gerðar með umboði aukaaðalfundar 11. febrúar 2007 og öðlast þegar gildi.


Posted at 02:24 am by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Wednesday, September 27, 2006
Félagsfundur

Félagsfundur

Laugardaginn 30. september nk. heldur Hið íslenska tröllavinafélag
félagsfund. Þar gefst kostur á að ræða um fyrirhugaðar vettvangsferðir
7. og 21.-2. október, og annað er félaginu við kemur. Félagar og aðrir
tröllavinir eru hvattir til að mæta.

Staður:
Dillon, bakgarður ef veður leyfir, annars skúmaskot á annarri hæð.

Stund:
Klukkan 20:00 stundvíslega.

Posted at 03:22 pm by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Thursday, July 20, 2006
Gærkveld

Hið íslenska tröllavinafélag hélt félagsfund og Jötunmóð í gærkvöldi. Skal hér gerð stutt grein fyrir niðurstöðum kvöldsins.

Eitt málefni var á dagskrá fundarins: Áfangastaður haustferðar. Fram voru lagðar tvær tillögur, önnur um Hólmavík og Strandir, hin um Snæfellsnes. Eftir umræður voru menn sammála um að Snæfellsnes yrði fyrir valinu. Ferðin verður farin næstsíðustu helgi í október og verður kynnt nánar þegar undirbúningur er lengra kominn.

Jötunmóð sóttu nokkrir gestir utan tröllavina. Var tilefnið fyrirhuguð ferð á Wacken-hátíðina, þangað sem tröllavinir gerðu fræga för í fyrra. Spjall, tónlist, öl.

Næsta tölublaðs Tröllafrétta má vænta seinnipart ágúst.


Posted at 08:49 am by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Monday, June 19, 2006
Félagsfundur á morgun

Kæru tröllavinir.

 

Annað kvöld, þriðjudagskvöld 20. júní, verður félagsfundur Hins íslenska tröllavinafélags. Á dagskrá verða tvö mál: Starf sumarsins og nýtt fyrirkomulag með vettvangsferðir og annað starf félagsins. Hið íslenska tröllavinafélag ætlast til þess að sjá sem flesta af vinum sínum og velunnurum. Fundurinn hefst klukkan 20:00 stundvíslega og verður á knæpunni Dillon. Ef til þess viðrar verður hann í bakgarðinum, en að öðrum kosti verður hann inni.

 

Kv. Vésteinn, varaformaður HÍT


Posted at 01:23 pm by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Sunday, May 28, 2006

Hið íslenska tröllavinafélag minnir á tilveru sína.

Posted at 07:22 am by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Monday, March 06, 2006
Jötunmóður og vettvangsferð á laugardagskvöldið kemur

Jötunmóður og vettvangsferð á laugardagskvöldið kemur
Næstkomandi laugardag, 11. mars, mun hið íslenska tröllavinafélag bregða undir sig betri fætinum, vonandi með þátttöku sem flestra félaga og tröllavina.
 
Planið er þetta:
 
Við hittumst á Litla, ljóta andarunganum í Lækjargötu milli kl. 21 og 22.
 
Þar munum við að sjálfsögðu haga okkur skikkanlega, enda á skikkanlegu öldurhúsi.
 
Við munum með öðrum orðum versla sem mest af öli og ekki vera með skrílslæti eða óeðlilega háreysti.
 
Upp úr klukkan 22 -- eða þegar okkur hentar -- leggjum við svo af stað í vettvangsferð. Hún verður stutt og eftir hana munum við mála bæinn rauðan.
 
Jötunmóðurinn verður í formi drykkjuláta og almenns ónæðis eftir að við komum út af Litla ljóta andarunganum.
 
Klæðið ykkur eftir veðri. Við förum ekki langt (ekki suður fyrir Hringbraut, ekki vestur fyrir Suðurgötu og ekki austur fyrir Barónsstíg, nánari upplýsingar um áfangastað verða ekki gefnar að svo stöddu) -- en það er óþarfi að láta sér verða kalt.
 
Ein vísbending þó: Einhverjir gætu haft gaman af að hafa með sér vaðstígvél eða vöðlur. Nú, eða gúmmíbát eða kanó ef þeir nenna að burðast með slíkt.
 
Sjáumst á Unganum milli 21 og 22!
 
Skyldumæting!

Posted at 10:54 am by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Friday, February 24, 2006
I og II

Hið íslenska tröllavinafélga gerir kunnugt:

I.
Fyrirhugað er bjórkvöld annað kvöld, laugardagskvöld.
Staður: Celtic Cross
Stund: 20:00.
Við verðum varla með frátekið skot, en þeir sem ekki hafa mætt áður geta gengið á tröllslætin.

II.
Fyrirhugaður er óreglulegur félagsfundur með vald stjórnarfundar á þriðjudagskvöld 28. febrúar.
Staður: Kaffi Hljómalind, Laugavegi 21.
Stund: 20:00.
Á fundinum verða rædd málefni félagsins, starfsemi og áframhald.
Hann er boðaður vegna þess að á síðustu tvo félagsfundi var mæting svo slök að ekki var fundarfært.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest,

Posted at 02:44 pm by Vesteinn
Leggðu orð í belg  

Next Page